Samantekt um þingmál

Jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku

107. mál á 144. löggjafarþingi.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Markmið

Að jafna raforkukostnað dreifbýlis og þéttbýlis.

Helstu breytingar og nýjungar

Leggja á sérstakt jöfnunargjald á þá raforku sem dreifiveitur taka á móti frá flutningskerfi Landsnets.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 98/2004 um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku.

Kostnaður og tekjur

Þegar litið er til áranna 2014-2016 eru nettóáhrif á ríkissjóð lítil sem engin. Þessi liður var ekki fjármagnaður fyrir árið 2014 en mun hins vegar skila umframtekjum árið 2016.

Umsagnir (helstu atriði)

Umsagnir skiptust nokkuð í tvö horn, með og á móti, en efnisleg gagnrýni var einkum varðandi aukna skattheimtu.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Landsnet

Orkustofnun



Síðast breytt 03.03.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.